
Um þjónustuna • AD Pípulagnir
Fagleg vinna og vandaður frágangur
Lekavandamál og biluð lagnakerfi krefjast skjótrar og öruggrar úrlausnar til að koma í veg fyrir vatnstjón. AD Pípulagnir bregst hratt við með markvissa bilanagreiningu og faglega viðgerð. Við lögum lekandi rör, skemmdar tengingar, biluð blöndunartæki og önnur lagnavandamál af mikilli nákvæmni.
Hvað felst í þjónustunni?
- Skjótar viðgerðir á leka í vatns- og hitakerfum
- Endurnýjun á lúnum eða tærðum rörum og fitingum
- Viðgerðir og skipti á blöndunartækjum og lokum
- Fyrirbyggjandi lagfæringar til varnar frekari skemmdum

Viðgerðir á lögnum
1 / 2